Um okkur

  • Nafn: Karen og Bjöggi
  • Staður: Schaffhausen, Sviss

Auglýsing

Myndirnar okkar

Klukkan

Takk fyrir mig... Þetta var geggjað!

10. nóvember 2008 klukkan 23:22
Gestafærsla Einars Inga

Þetta byrjaði allt á flugvellinum í Frankfurt. Þar var einhver allveg heilbrigður Þjóðverji sem vísaði nokkrum farþegum, þar á meðal mér inní vitlausan sal til að ná í töskurnar. Ekki gott þar sem Bjöggi var að bíða og var að verða of seinn á fund og æfingu hjá Bitturunum. Þetta reddaðist hinsvegar allt á endanum með smá seinkun komst ég nú út úr þessari blessaðri flugstöð með töskuna... Á leiðinni heim af flugvellinum sem var átti að vera einhver 2 tíma akstur, var bullandi umferð. En með hjálp Navigatorsins komumst við á leiðarenda örlítið seinna en áætlað var, magnað tæki.

Ég byrjaði á því að fara á einhvern næringarfund, þar sem farið var yfir hvað er best/hollast að borða. Fyrirlestur á þýsku, sem kallinn fór auðvitað létt með að þýða fyrir Bjögga enda stúdent með 9 í þýskunni... Eftir þennan frábæra fyrirlestur var farið á videofund þar sem lið Wallau var greint í drasl, og ekkert annað en sigur væntanlegur daginn eftir.

Um kvöldið fóru þau hjónin með mig í keilu, ásamt einhverjum vini þeirra sem var með tískuna hér í þýskalandi allveg á hreinu, hvað er málið með þessar trefla? Þessi keilusalur/höll var frekar flott, stappað af liði þarna og hátt í 30 brautir. Við byrjuðum á því að fá okkur að borða, þar sem ég og Bjöggi fengum okkur „Tripel play" fyrir ykkur sem þekkið það af Ruby. Allavega bragðaðist það hriklalega vel, en ég lenti í því ólani að skera mig í puttan sem átti eftir að hafa afleiðingar í keilunni, ekki gott að meiðast svona rétt fyrir leik ofan á meiðslinn á olboga og hné sem var búið að vera að angra mig síðan í fluginu. Ég tapaði allavega í keilunni, þar sem Bjöggi sló einhver met og Karen toppaði algjörlega. Helvítis meiðslin.

Laugardagurinn byrjaði með máltíð á heimsmælikvarða sem Karen mixaði! Eftir það var svo lagt af stað á leikinn, en planið var að fara á tvo leik, byrja að fara til Mannheim og horfa á Gau valta yfir Robba og svo átti Wallau að vera tekið í bakaríið af Bjögga og félögum, raunin var samt önnur. Ég og Karen keyrðum með hjálp Navigator til Mannheim og á leiðinni þá fórum við yfir allt slúðrið sem var í gagni hérna á íslandi, kvennamálin hjá Rúnari, hvern Eva væri að deita, nýjustu samböndin á markaðnum og margt fleira!

Leikirnir tveir voru vonbrigði, Gaui sem hafði reddað okkur miðunum (takk Gaui) fann sig enganveginn ásamt félögunum í Rhein-Neckar Löwen og gengu Gummersbach menn á lagið og unnu sigur með Robba í fararbroddi. Eftir þennan leik var brunað á Wallau - Bittenfeld , þar sem Bittenfeld tapaði leiknum eftir að hafa verið yfir í 50min. Komst að því að þjálfarinn er ekki nógu góður og formið á liðinu ekki nógu gott heldur. En það er bara mín skoðun.

Eftir leikinn var Gaui búinn að bjóða okkur að koma til þeirra og fá okkur nokkra öl með þeim. Við fórum þarna á einhvern skemmtistað, þar sem Rhein-Neckar Löwen var búið að vera á einhverju liðsdjammi. Þegar við komum voru hinsvegar nær allir farnir, bara Gaui, Uwe og Schwarzer sem fór reyndar líka snemma heim eftir. Við skemmtum okkur samt konunglega, Gaui flottur að vanda, Uwe algjör toppdrengur og Bjöggi, Þóra hans Gaua og Karen hrikalega kát! Þetta var ótrúlega gaman og gerðust vafasamir hlutir sem innihalda varalit, staupglös, Siffa, svið, hvítvín og margt fleira sem ég held innan hópsins... Þegar halda átti heim af skemmtistaðnum var byrjað á að fara heim til Gaua að spjalla og fá sér nokkra bjóra fyrir svefninn. Eftir það voru menn orðnir miserfiðir og svefninn kærkominn þegar við komum heim!!!

Sunnudagurinn var erfiður, mikil þreyta í mannskapnum og var því bara legið í leti frameftir degi, Bjöggi fór reyndar út að hlaupa en ég lét það ógert og svaf! Um kvöldið var svo planið að fara á tónleika með 3 doors down í Porche Arena, en þar spila Bittenfeld menn nokkra leiki á ári. Þvílíkir tónleikar, geggjað gaman og ótruleg röddin í þessum söngvara. Við skemmtum okkur konunglega og ferðinn algjörlega að standa undir væntingum. Kvöldið/nóttin var síðan tekin yfir sjónvarpinu, festumst yfir Saw 3, sem er mjög eðlilegt.

Heimferðinn var síðan eins og hver önnur heimferð. Lestin tekin til Frankfurt, borðað á flugvellinum þar sem Bjöggi vildi fara á MacDonalds en ég náði að fá hann ofan af því, enda landsliðsæfing hjá honum um kvöldið. Svo var flogið heim með Iceland Air.

Ég vil þakka Bjögga og Karen fyrir frábært heimboð, farið með mann eins og kóng og skemmtunin ómetanleg.


Orð ferðarinnar: Vááááá
Auðlingar ferðarinnar: Karen og Bjöggi
Atvinnumenn ferðarinnar: Gauðjón Valur og Uwe Gensheimer
Þjófnaður ferðarinnar: Þegar Gaui stal bolnum úr bílnum hans Bjögga
Heilræði ferðarinnar: „Ef þú ætlar að detta í það á annað borð, þá er bara að taka það alla leið"
Hlutir ferðarinnar: Navigatorinn og varaliturinn hennar Þóru
Drykkur ferðarinnar: Allavega ekki Apfelschorle eða hvað sem það heitir

Karen og Bjöggi
3 athugasemdir

Afsakið biðina :)

07. nóvember 2008 klukkan 00:55
Ég vil byrja á því að biðjast afsökunar á því hvað það er langt síðan að við blogguðum. En aðal ástæðan fyrir því er sú að við fórum til Íslands í viku. Bjöggi fór að spila tvo leiki með landsliðinu og ég nýtti mér það tækifæri og fór að heimsækja alla á Íslandinu góða.

Ferðin til Íslands var alveg frábær í alla staði. Alveg yndislegt að fá að hitta alla. Ég nýtti vikuna mjög vel og hitti flesta :) Takk fyrir frábæra viku!!

Ég tók fullt af myndum í heimsókninni til Íslands en þar sem að internet fyrirtækið okkar heldur áfram að standa sig illa þá er enþá vika í almennilegt internet hjá okkur!... Erum enþá bara með bráðabirgða netið.

En um leið og við fáum netið á koma inn fullt af myndum frá Germany, myndir frá heimsókninni hans Einars Inga og Íslandsförinni. ;)

Berglind litla systir hans Bjögga er í heimsókn hjá okkur núna. Hún kom með mér á mánudaginn hingað til Þýskalands, við erum búin að gera ýmislegt síðan hún kom. Svo á morgun ætlum við að kíkja í dýragarð hérna í Stuttgart. Sem er víst talinn einn sá besti í Evrópu. Svo er það auðvitað keila annað kvöld. ;) Við höldum fast í þann sið.

Bjöggi kom hingað á sunnudaginn beint frá Noregi, því það var leikur hjá honum í Porsche arena, sem er höllin í Stuttgart. Þetta var einn af fjórum leikjum sem að þeir spila þar. Á leikinn mættu um 6000 manns og mjög mikil stemmning. Þeir unnu þann leik með tveimur mörkum.

Næsti leikur hjá Bjögga er svo núna á laugardaginn, það er útileikur en við Berglind ætlum að skella okkur á hann og fara með aðdáendarútunni.

Á fimmtudaginn eftir viku koma svo mamma og pabbi í heimsókn. Get ekki beðið eftir að fá þau ;)

Ég ætla nú ekki að hafa þessa færslu langa því við bíðum spennt eftir gestafærslunni hans Einars, hún ætti að detta inn fljótlega??? Eða hvað Einar?

Mætt aftur!

22. október 2008 klukkan 10:25
Sæl aftur... Þá er komið að minni fjórðu færslu. Djö.. er ég að standa mig... og þessi verður ekki stutt, þannig komið ykkur í stellingar..

Eins og við sögðum ykkur frá í síðustu færslu þá er netið búið að vera í veseni síðustu tvær vikurnar en erum við nú kominn aftur á ról.
Margt hefur gengið á síðan við heyrðumst síðast og ætla ég að fara yfir flest sem hefur gerst í stuttum dráttum...

Íbúðin: Ég vil byrja á því að þakka fólki fyrir skemmtilegar athugasemdir um íbúðina okkar og þá sérstaklega Jóa fyrir sitt hjálplega og fagmannlega mat. Mikið af breytingum hafa átt sér stað í íbúðinni og eru væntanlegar nýjar myndir af íbúðinni á næstunni og þá verður íbúðin endanlega orðin klár... Já og það er kominn mynd af þér inn í stofu Jói þannig að hún er orðin mun hlýlegri íbúðin við það eitt. ;) Mikið hefur verið ritað um gestaherbergið og ætla ég mér að reyna að smita alla sem hingað koma í heimsókn af þessari frábæru Man Utd bakteríu sem að býr í okkur öllum.


Okkar fyrsta matarboð: Við héldum okkar fyrsta matarboð í nýju íbúðinni og renndu þeir á okkur þeir Florian og Marco, en þeir spila með mér í liðinu. Við buðum þeim uppá íslenska ýsu með öllu tilheyrandi og nutum vel. Reyndar bættust 2 í hópinn þegar leið á kvöldið en Benny (hinn markmaðurinn) og Mario komu og tóku þátt í okkar fyrsta pókerkvöldi.

 


Volksfest: Þetta er ein stærsta hátíð í Þýskalandi í ári hverju ásamt Oktoberfest í Munchen og kíktum við Karen og Sven þangað. Kíktum í nokkur tívolítæki og slökuðum á. Myndavélin gleymdist en þá kom I-Phone/inn minn til bjargar. ;)


 

Ath...næsti dálkur... Ekki fyrir viðkvæma!!! Hehehe...
Ætla að reyna að tala sem minnst um handbolta, en síðustu tvo leiki höfum við verið að spila skelfilega. Hvað mína frammistöðu varðar þá var ég ánægður með annan leikinn en ekki hinn.
Urðum fyrir miklu áfalli í seinasta útileik en þá meiddist Marco illa, en hann er einn af okkar bestu mönnum. Þetta atvik er eitt það minnst skemmtilega sem ég hef séð á handboltavellinum...
Undir lok fyrri hálfleiks fær Marco þungt högg á andlitið með þeim orsökum að hann fellur í gólfið. Við vorum að spila í mikilli grifju og var púað mikið á hann eins og leikaraskap væri að ræða, þá stendur einn leikmaður upp af bekknum í hinu liðinu og hvetur áhorfendur til að púa meira...
Rétt hjá mér var aðal stuðningsmaður andstæðingana og púaði hann á fullu ásamt því að láta ljót orð falla á hann þar sem að hann lá í gólfinu. Þá gerði ég eitthvað sem ég hef aldrei gert áður á ævinni, að tjá mig við áhorfendur hins liðsins, en ég labbaði til hans og sagði honum að svona hagar maður sér ekki þegar um höfuðmeiðsli er að ræða.
Í þann mund sem að ég sleppti orðinu þá stendur Marco upp alblóðugur. Síðan 2 sek seinna hrinur hann í gólfið. Þá koma sjúkraþjálfarar o.fl. inná og hann er studdur útaf og sest á bekkinn. Síðan er leikurinn flautaður á aftur, en strax og það gerist þá hnígur Marco niður og "ælir" blóði inná völlinn. Þá koma sjúkraliðar og læknar og þá kom það í ljós að hann var alvarlega kjálkabrotinn og brotnaði kjálkinn inn í munninn á honum. Hann var svo fluttur á sjúkrahús. Það sem eftir var af leiknum lékum við eins og aular og vorum við 3 mörkum yfir þegar þetta gerist en töpuðum leiknum að lokum með 7 mörkum minnir mig.
Verð reyndar að taka hattinn ofan fyrir áhorfandanum sem að ég átti í orðaskiptum við en hann kom til mín í hálfleik og baðst afsökunar og bað mig um að henda kveðju á Marco.
Við sóttum svo Marco á sjúkrahúsið eftir leik og var hann vel umbúðaður....

Hann fór í aðgerð í byrjun þessarar viku sem heppnaðist vel en þarf hann að vera víraður saman allur í einhverjar vikur...

En það eru bjartir tímar framundan hjá okkur Karen en eftir 2 daga kemur Einar Ingi stórvinur minn í heimsókn og munum við brasa ýmislegt á þessum stutta tíma sem að hann verður hérna... Þessi heimsókn verður LEGENDARY...
Hann verður síðan gestabloggari að ferðinni lokinni og mun fræða ykkur um það hvernig þessi heimsókn var frá A-Ö. Er það ekki Einsi???
Eftir hans heimsókn förum við þrjú saman til Íslands en þá tekur landsliðið aftur við og hlakka ég mikið til að hitta strákana aftur.
Síðan það sem eftir er ársins eigum við von á fullt af fólki í heimókn, t.d Berglindi systir, Oddu og Einari tengdó og Pabba og Guðrúnu. Þannig að það er nóg að gera....

En ég læt þetta gott heita í bili...
(Er reyndar með svona "dagsins" dæmi neðst, en það er stuldur frá Loga vini mínum... Takk Logi)

Lag vikunar: Ég er furðuverk (Kemur í ljós af hverju seinna)
Spakmæli dagsins: "You play like you train"
Þýska vikunnar: Slos (Stytting á "Was ist los")
Menn vikunnar: Marco, áhorfandin á móti Aue og Týri fiskikall. (En Týri er að flækjast um Þýskaland með fisk, lambalæri og harðfisk fyrir okkur Íslendingana hérna.)
Tæki vikunnar: I-phone/inn minn fyrir að bjarga myndatökunni í Stuttgart.
Last vikunar: Net fyrirtækið okkar (Arcor)
Kaup vikunnar: Pókerborðið (og Chips taskann)

Bjöggi
7 athugasemdir

Stóra netvandamálið!!!

15. október 2008 klukkan 18:49
Sæl öll sömul...

Nú höfum við ekki haft netið né heimasímann í viku og er það orsök okkar bloggleysis þessa dagana. Símafyrirtækið okkar hér í Germany er ekki að gera góða hluti og er það ekki það auðveldasta að vera án netsins og heimasímanns. Erum kominn með alskyns einkenni og kvilla vegna þessa og vonandi komust við í samaband við umheiminn innan stundar... hehehe.
Meðan að við bíðum og vonum væri fínt að þið gætuð sent okkur fréttir að heiman í gegnum gestabókina. ;)
Farið vel með ykkur og ný færsla dettur inn áður en þið vitið af.
Hver veit nema ég reyni að pússla saman næstu færslu... (Bjöggi)

Saknaðarkveðjur
Bjöggi og Karen
Bjöggi
3 athugasemdir

Loksins loksins :)

08. október 2008 klukkan 22:09
Þá erum við búin að taka myndir af íbúðinni.....
Það vantar þó enþá nokkra hluti inn s.s sjónvarp í herbergið og fleira :)...
En þetta er svona nokkurn vegin hvernig hreiðrið okkar lítur út :*


Svefnherbergið


Gestaherbergið


Gangur


Baðherbergið


Þvottaherbergið


Eldhúsið


Stofan

...Helgin...

06. október 2008 klukkan 22:43

Eruði ekki ánægð hvað ég er rosalega dugleg að blogga... allvega er ég ánægð með það ;)

Helgin var mjög góð, fyrir utan það að Bjöggi og co. rétt töpuðu fyrir Bergischer, áttu að vinna þennan leik en klúðruðu leiknum á síðustu 2 mínútunum. Með sigri hefðu þeir farið í annað sætið. Þannig það var mjög svekkjandi tap.

Á föstudaginn fórum við í keilu og pool... Það er ekki lengur hjátrú því að leikurinn tapaðist, en annars er það ágætis hefð að fara allaf á föstudögum :) Mjög skemmtilegt er að segja frá því að það munaði engu ég hefði unnið einn leik í keilunni. En Bjöggi bjargaði sér með að ná fellu í loka umferðinni og fá því auka umferð. Hjartað á Bjöggi byrjaði að slá ansi hratt þegar hann fattaði að hann væri kanski að fara að tapa fyrir stelpu... Hann var orðinn ansi stressaður karlinn. Ekki munaði þó miklu á stigum, ég var með 142 og Bjöggi 148. Bjöggi reynir að afsaka mig með að hann hafi verið að prófa nýja “tækni” en við tökum ekki mikið mark á því ;) En ég lenti því í öðru sæti og bætti metið mitt ansi mikið. Sven var ekki sáttur að lenda í þriðja sæti en ég nýt þess bara að hafa unnið hann svona einu sinni :)...

Á laugardaginn eftir leikinn fórum við í mat með liðinu og kíktum svo til Stuttgart. Fórum á uppáhalds skemmtistaðinn okkar, Penthouse. Það er risa stór skemmtistaður með, 80’s tónlist, R&B og svo Techno. Einnig er þar veitingarstaður og svalir til þess að vera úti. 80´s herbergið sló í gegn að þessu sinni :)

Í lok kvöldsins var svo endað á góðri máltíð á Macdonalds... En hann er við hliðina á skemmtistaðnum :)

 

Á sunnudagskvöldið kíktum við svo á tónleika hérna í bæ sem er 25 mín frá. Það voru tvær íslenskar hljómsveitir að spila, en við höfðum ekki heyrt um þessar hljómsveitir fyrr en nú. Þetta voru hljómsveitirnar Seabear og Borko. Seabear er mjög góð hljómsveit og könnuðum við þau aðeins og þá kom í ljós að þau áttu lag í Gossip girl þætti sem að var sýndur í september. Þannig við mælum alveg með Seabear... Mjög þæginleg tónlist.

Eftir tónleikana spjölluðum við aðeins við þau og voru þau svo almennileg að gefa okkur boli.

 Á miðvikudaginn verður íslenskur maður að selja íslenskan fisk og lambalæri í Stuttgart. Við ætlum að renna á hann og kaupa okkur nokkur kíló af fisk og ekta íslenskt lambalæri. Hann fer víða um í Evrópu og gleður Íslendingana sem að búa erlendis :)

 

Ég fer í það að setja myndir inn á næstunni ;)...  Svona af hinu og þessu sem að við erum búin að vera að gera :* Verð samt að vera duglegri að kippa myndavélinni með! 

Easy friday...

03. október 2008 klukkan 15:41

Í dag var frídagur hérna í Þýskalandi. Það er verið að halda uppá sameiningu vestur og austur Þýskalands.

Við erum búin að vera rosalega dugleg í dag, við þrifum alla íbúðina. Við ákváðum líka verkaskiptinguna hjá okkur í þrifum. Bjöggi semsagt ryksugar og þurkar af, og ég skúra, þríf baðherbergið og pússa gler :) Hvernig lýst ykkur á þetta plan hjá okkur???...

I kvöld ætlum við svo að fara í keilu, þetta er orðin einhver hjátrú hjá okkur fyrir leiki hjá Bjögga. Erum búin að fara tvisvar og leikirnar hafa báðir unnist. Við borðum líka þarna og er þarna einnig mjög fínn matur. Bjöggi fær sér alltaf rif, og það eru ekkert venjulegur skammtur af rifjum... heldur er það troðinn diskur af rifum og frönskum.


Verðið á matseðlinum er kanski ekki alveg í jafnvægi, því troðinn diskur af rifum kostar 7.5 evrur. Svo pantaði Sven vinur okkar sér kaffi og hann borgaði 5 evrur :) Þetta er mjög skemmtilegur staður til þess að fara í keilu, en einnig er þarna poolstofa og fleira.

Það er leikur hjá Bjögga á morgun á móti Bergisher, liðið er eitt af toppliðunum og verður það örugglega hörkuleikur. Eftir leikinn er svo planið að kíkja aðeins á lífið í Stuttgart.

Íbúðin okkar er klár og er yndislegt að vera búin að öllu. Við tökum svo myndir um helgina og setjum inn ;)

Í sambandi við vinnuna mína þá eru aðeins breytt plön. Það kom í ljós að þetta var ekki eins mikill lúxus og átti að vera í upphafi. Heldur voru þetta fullir vinnudagar frá 7.30-16.30 með klukkutíma pásu. Og þar sem að þetta var svona lærlingsstaða og þá eru launin ekki boðleg.

Ég er búin að vinna tvo daga og var þetta mjög fín vinna, en ekki þess virði að eyða öllum tímanum hérna í að vinna og fá lítið sem ekkert fyrir það.

Ég er því búin að ákveða það að fyrir áramót verð ég bara að æfa tvisvar á dag, ræktin á morgnanna og æfing á kvöldin og svo að læra þýskuna. Aðeins að njóta þess að vera hérna og slaka á :) Hef aldrei prófað það áður að vera ekki í skóla eða að vinna eða neitt... :*

Við Bjöggi fundum mjög góða líkamsræktarstöð þar sem við getum spilað skvass og tennis og fleira.

Við fáum líka svo mikið af heimsóknum og þá er skemmtilegra að ég geti verið með gestunum. Svo kíkir maður til Íslands þannig það tekur því varla að vera að vinna :)

Síðan ætla ég mér eins og staðan er núna í Háskólann eftir áramót, ég ætla í HÍ í félagsráðgjöf, taka hana utanskóla. Við Bjöggi verðum meira og minna á Íslandi í janúar þannig að ég næ að mæta aðeins í skólann þá. Þannig ef þið vitið um einhvern sem að er á fyrsta ári í félagsráðgjöf þá megiði endilega láta mig vita!! :)

Takk æðislega fyrir öll kommentin, frábært að sjá að þið fylgist með... ;*

P.s Einar... við erum búin að “laga” myndavélina þannig að við lofum að vera duglegri að taka myndir núna ;) Við verðum líka dugleg að taka myndir af þér þegar þú kemur :*

Allt að smella saman :)

29. september 2008 klukkan 15:46

Ekkert smá gaman að vera loksins búin að gera íbúðina fína. Við erum búin að vera mjög dugleg síðustu daga og er allt að verða komið hjá okkur... Nú erum við bara að bíða eftir myndunum á veggina sem við vorum að panta þá er bara allt komið. Nema gestaherbergið sem var notað undir pappakassana af öllu því sem við vorum að kaupa. Troðið af kössum ;)... En við hendum því út á morgun og þá er þetta bara komið hjá okkur ;)

Þannig að það eru væntanlegar myndir af íbúðinni einhverntímann í lok vikunnar.


Við erum búin að vera að leita okkur af spari stelli og fundum við draumastellið okkar um daginn, og þá að sjálfsögðu var það ekki til. En við vorum svo sniðug að athuga amazon.de og þar var stellið í öllu sínu veldi... Við fengum stellið mjög fljótt og var að það komið til okkar innan tveggja sólahringa.


Stellið okkar


Það er komið á hreint með vinnuna mína, ég er að fara að vinna á leikskóla hérna í bænum. Er ekki nema fimm mínútur að labba í vinnuna. Sem er mjög gott. Ég vinn mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá 8-13 og 14-16.30 svo er ég í fríi á miðvikudögum og vinn bara til hádegis á föstudögum. Snilld með miðvikudagana því við Bjöggi erum bæði í fríi á æfingu á þeim dögum, þannig þeir verða notaðir í einhvað skemmtilegt.
Það er margt sem að við eigum eftir að skoða og kanna hérna í kring, t.d inni vatnsrennibrautagarður, Europa-park (Sem er skemmtigarður, einskonar tívolí) svo eigum við eftir að skoða betur búðirnar í Stuttgart, þannig að miðvikudagarnir verða nýttir vel ;)


Ég er svo byrjuð að æfa, ég ákvað að fara í lið sem heitir Waiblingen. Það er stór bær sem er í korters fjarlægð. Við æfum þrisvar í viku og svo er leikur einu sinni í viku. Og eru æfingadagarnir mjög góðir því æfingar eru sömu daga og ég vinn fullan vinnudag þannig að þrír dagar í viku verða pakkaðir. Þá er eins og ég sagði miðvikudagarnir alveg fríir í skemmtun og svo fer ég bara út að hlaupa á föstudögum. Þannig að þetta henntar mjög vel.


Það var leikur hjá Bjögga á laugardaginn, þeir unnu með 1 marki 28-27. Voru komnir 7 mörkum yfir í fyrri hálfleik en slökuðu of mikið á. Mjög skemmtilegur og spennandi leikur í lokinn. Hinir fengu dauðafæri á síðustu sekúntu leiksins en boltinn hafnaði í slánni. Þannig þetta var snilldar sigur. Þetta var líka mjög stór sigur fyrir bæinn, því að þetta var hálfgerður grannaslagur. Hefur alltaf verið rígur á milli þessara liða. Þessu liði var einnig spáð 2-3 sæti og á að vera eitt af bestu liðinum. Bjöggi stóð sig mjög vel í leiknum og átti mikinn þátt í því að ná svona góðu forskoti í fyrrihálfleik.

 

Annars er ekki meira að frétta í bili sem ég man eftir. Endilega látið mig vita ef ég er að gleyma að segja ykkur einhvað ;)


Þið megið endilega vera duglegri að kommenta, gleður okkur mikið að vita hverjir eru að skoða síðuna og fylgjast með okkur. Ef þið hafið ekkert að skrifa þá er alveg nóg að segja bara hæ-flott-gaman eða eitthvað í þeim dúr hehe ;)


 



Á leiðinni á Löven-Lemgo

Daginn :)

21. september 2008 klukkan 18:14

Nú fer íbúðin okkar alveg að verða tilbúin og erum við búin að setja næstum allt saman :) Þá eigum við bara aðeins eftir að raða smáhlutunum og fínpússa...


Bjöggi spilaði í gær á móti Leichlinger TV og unnu þeir sannfærandi 32-26. Voru yfir allan tíman og voru mjög sprækir. Spiluðu mjög vel og skemmtilegan bolta. Strákurinn stóð sig mjög vel og varði 16 bolta, spilaði fyrstu 45 mínúturnar.

Ef þið viljið skoða myndir úr leikjunum getiði farið inná heimasíðu Bittenfeld, www.tvbittenfeld-handball.de

Við erum búin að vera að prufa okkur áfram í matnum hérna, prufa mismunandi smjör, mjólk, ost, jógúrt, corny, drykkjum ofl til þess að finna hvað okkur finnst best. Maður getur verið endalaust inní stórum súpermörkuðum og skoðað og sett í körfu... Ekki vissi ég að það væri svona skemmtilegt að versla í matinn... hehe... en það varir örugglega bara fyrstu vikurnar.

Annars er maturinn mjög líkur hér og á Íslandi, það er bara eitt og annað sem að vantar auðvitað þegar maður er svona góðu vanur á Íslandi, og má þá allra helst nefna kristal og kristal plús. Einn drykkur leysir þó kristalinn ágætlega af... það er apfelschorle, eplasafi og sódavatn saman... mjög gott.

 

Eitt sem að er mjög sniðugt hérna er að allstaðar þar sem við förum í mat er alltaf salat í forrétt. Það er mjög mikill siður hérna í Þýskalandi. Þetta gerir salatið betra og er með góðum salatdressingum og maður borðar vel af því. Yfirleitt neyðist maður til þessa að setja smá slettu af grænmeti á diskinn sinn. En hérna eru yfirleitt sér diskar fyrir salatið.

 

Annað sem að maður er kanski ekki vanur á Íslandi að hérna heilsast allir með handabandi eða kossi á sitt hvora kinnina í hvert sinn sem þeir hittast.Það er ekki eins og á Íslandi þegar maður rétt svo hreytir hæji útúr sér yfir allan hópinn J... Þetta er kanski einhvað sem mætti taka til fyrirmyndar á Íslandi, svo við verðum nú svolítið vinalegri ;)

 

Við kíktum í keilu á föstudaginn með vinum okkar hérna og þar fór Bjöggi yfirburða á kostum og vann báða leikina, það sem toppaði hans leik var meðal annars afturábak kast og snúningur. Ég ætla ekki að tala um mitt gengi í keilunni en segjum bara að ég hafi verið ansi ryðguð því það er orðið ansi langt síðan síðast.

 

Í lokinn langar mig að koma með ansi góða pælingu sem að Jóhann kom með...

 

Þegar við vorum að borða með liðinu um daginn segir Jóhann: Ef ég ætti að teikna Þjóðverja þá myndi ég teikna akkúrat teikna þennan gæja!

 

 

 

Svo leið smá tími og þá kom annar maður og settist hjá okkur þá sagði Jóhann: Ef ég ætti að teikna þjóðverja og mætti ekki teikna hinn... þá myndi ég teikna þennan ;)

 

 

 

Hahaha

 

Takk í bili

 

Karen

 

Karen og Bjöggi
6 athugasemdir

RNL-Lemgo...

17. september 2008 klukkan 23:33

Sæl aftur...

Vil byrja þessa færslu á því að biðja Vignir Svavarsson innilegrar afsökunar á því að hafa ekki skrifað hann í síðustu færslu. (Vonum bara að hann viti ekki enn að ég sé kominn með síðu...) Skil ekki hvernig ég fór að því, en gleymdi auðvitað að nefna hann í einvíginu, var meira að segja að tala um hann við Loga þegar ég skrifaði færsluna. Þar skeit ég á mig maður, sorry man. Er ekki alveg búinn að meðtaka það að hann sé kominn til Þýskalands...


                                   

Enn að leiknum... Einvígi Loga og Gauji endaði með jafntefli 3-3 en það var engin með þær tölur réttar, kemur bara næst. Var nokkuð ánægður með fyrstu þátttökuna, en vil enn fleiri með næst... Ætli það verði ekki bara lokatölur í mínum næsta leik. En meira um það seinna.

Leikurinn sjálfur endaði einnig jafntefli en Lemgo hafði lengi vel góð tök á leiknum, en þrátt fyrir það gátu Rein-Neckar tryggt sér sigurinn í lokinn.

Það var alveg greinilegt að Gauji hafi verið nýbúinn að lesa bloggið mitt fyrir leikinn því að hann ákvað að byrja leikinn á því að klippa Loga út og reyna að koma í veg fyrir að Logi skoraði fleiri mörk en hann. Gott Goggi...

                                       

En við erum nýkominn heim af leiknum eftir klukkutíma keyrslu frá SAP Arena og erum dottinn í bælið.


En eitt að lokum. Þetta er video er SNILLD...

(Sorry smá ÓL dæmi)

Ísland best í heimi!!!

 

Bið að heilsa öllum á klakanum.

Kv. Bjöggi

Bjöggi
3 athugasemdir