02. mars 2009 klukkan 17:46
Jimundur hvað það er langt síðan að við blogguðum...
Ég vil alfarið koma því á hann Björgvin sem er alltaf að lofa að blogga en svo kemur bara ekki neitt blogg frá honum. Ég vil endilega biðja ykkur kæru vinir um að hvetja hann til að koma með eina góða þar sem að hann er nú búin að vera í heldur betur góðri pásu frá blogginu!!
Það sem að hefur dregið á okkar daga er að við fórum þar síðustu helgi til Lemgo, gistum tvær nætur þar. Fórum á leik hjá Lemgo-Löwen og áttum svo tvö frábær kvöld með öllum Íslendingunum sem að voru á svæðinu. En við vorum níu Íslendingar. Þetta var alveg frábær helgi og mjög mikið hlegið!! :*

Síðustu helgi var Bjöggi að spila útileik lengst í burtu. Þeir töpuðu með tveimur mörkum, voru yfir allan tímann en klúðruðu þessu í lokinn... þeir eru orðinir hálf þekktir fyrir það. Þurfa að fara að klára þessa leiki sem að geta farið 50/50. Liðið sem að þeir spiluðu við situr í 2. sæti deildarinnar sem sýnir styrk liðsins og að þeir séu mikið neðar en þeir ættu að vera í deildinni.
Á meðan sat ég við borðið og baslaðist við ritgerð og horfði á bikarleikina sem að voru því miður ekki nógu spennandi. Ég var alveg búin að gera mér vonir um að "litlu" liðin myndu nú taka þetta. En svo fór ekki og bikarmeistararnir síðan í fyrra héldu tiltlinum í báðum leikjunum
Ég kíkti einnig aðeins á Gettu betur... mikið er skemmtilegt að sjá gamla skólann sinn taka annan skóla svona í bakaríið... ég hef nú bara trú á að versló taki þessa keppni í ár.
Eins og þið sjáið þá er alltaf hægt að finna einhvað annað að gera þegar að maður á að vera að drita orðum niðrá blað.
Gauji og Ína önnur litlan hans kíktu á okkur í gær og horfðu þau horfðu á enska bikarinn ásamt einhverjum handboltaleikjum hjá okkur. Okkar menn sigruðu að sjálfsögðu bikarinn... ég var líka frekar sátt að fá vítaspyrnukeppni, en það er alveg hápunkturinn í fótboltaleikjum hjá mér!
Bjöggi litli var að láta rífa úr sér tönn í morgun og saumað fyrir og læti, ég spyr í gríð og erg hvort að það sé ekki allt í góðu, segi honum að leggja sig og ég veit ekki hvað og hvað en hann bara hvæsir á það og segir að hann finni ekki fyrir neinu... allt sé í góðu og hann láti nú ekki einhvað svona smotterí á sig fá.
Ég er viss um að ef ég væri í hans stöðu þá væri ég mjög góð við sjálfan mig og léti vorkenna mér allan daginn ;)
Annars er lítið af okkur Bitturum að frétta, ritgerðavinnan er í hámarki hjá mér og Bjöggi vinnur í missioninu sínu eða "innrásinni" eins og hann vill kalla það.
Fyrir ykkur veðuráhugamenn þá er búið að vera flott verður hérna síðustu daga. Hitastigið er búið að vera í kringum tíu stig og tipp topp verður.
Fleira var það ekki í bili, farið vel með ykkur
Karen
Karen og Bjöggi
20. febrúar 2009 klukkan 15:28
Best að koma með eina færslu svona í anda helgarinnar...
Allt við það sama hérna í Bitten... Leikur í kvöld hjá Bjögga, Derby slagur, allir svakalega spenntir fyrir þessum leik... líka eins gott að þeir vinni þá!
Í fyrramálið er svo bara lagt af stað til Lemgo, ætla tveir strákar héðan að koma með okkur þannig að við ætlum að fara í svona mini rútu. Ég set stefnuna á að koma mér vel fyrir aftur og og hafa það gott :)
Langaði líka að deila með ykkur einu videoi....
http://www.youtube.com/watch?v=zVNTdWbVBgcÞetta er án efa eitt það dúllulegasta sem að ég hef séð!!... Er jafnvel að spá í að fá mér bara eitt stykki ljón sem gæludýr :)
En góða helgi allir saman og gangið hægt um gleðinnar dyr
p.s segið svo að ég sé ekki dugleg að blogga!
Karen og Bjöggi
15. febrúar 2009 klukkan 23:21
Það er tvennt sem að vefst alltaf fyrir mér þegar að ég er að blogga, fyrir það fyrsta hvernig ég á að byrja færlsuna og svo fyrirsögnin... þoli ekki þessa fyrirsögn...
Helgin var róleg hjá okkur Bittenfeldurunum... Á föstudaginn var Bjöggi að spila útileik við Leichlinger, þeir lögðu af stað um hádegi og vorum ekki komnir heim fyrr en um nóttina voru frekar langt frá. Á meðan var ég alveg svaðalega dugleg að læra og náði alveg að gera nokkrar blaðsíður í einni af þremur 10bls ritgerðunum sem ég þarf að gera ásamt öðru ;) Já þetta er ekkert dans á rósum þessi háskóli...endalaus lestur og ritgerðir...
Í gærkvöldi fórum við út að borða svona í anda valentínusardagsins... fengum okkur þriggja rétta og kószý... komum svo heim og horfðum á söngvakeppni sjónvarpsins. Í sambandi við úrslitin... Ég stóð nú með Got no love vegna þess hversu fjörugt og upplífgandi það lag er, það er einhvað sem að við á Íslandi þurfum til þess að komast uppúr þessari undankeppni. En Jóhanna Guðrún er náttúrulega lang besta söngkonan þarna og skilaði sínu lagi alveg frábærlega... ég er bara ekki viss hvort að við séum einhvað að fara að komast áfram með svona rólegu lagi... En hún er flott stelpa og vonandi skilar það einhverju auka stigum. Annars fannst mér lagið The kiss we never kissed ,með Edgar alveg rosalega fallegt lag... það var eitt af mínum uppáhalds en alls ekki Eurovision lag. Eruði að fylgja mér í þessum Eurovision pælingum??? ;)
Næstu helgi er stefnan sett á að bruna til Lemgo og kíkja á strákana þar. Þeir eru að spila á móti Gauja og félögum í Löwen á laugardaginn. Ætlum svo að gista eina nótt Í Lemgo. Held að Vignir ætli að vera rosalega gestrisinn og skipta um á rúminu fyrir okkur ;)
Bjöggi á leik á föstudagskvöldið, sá leikur er hálfgerður derby leikur því þessi lið eru hérna á sama svæðinu... þannig að það má búast við hörkuleik...
En við eigum svo von á tveimur heimsóknum í apríl, bræður hans Bjögga ætla að koma 2-6 apríl og síðan kemur Sibban mín til okkar 6. apríl og ætlar að vera hjá okkur í viku... :*
Eigið góða viku
K&B
Karen og Bjöggi
09. febrúar 2009 klukkan 09:30
Jæja loksins tókst mér að setja annálinn inn!!
Ég setti hann inná facebook því að youtube leyfði mér ekki að hafa lögin undir... ég geri nú ráð fyrir að flest ykkar sem að lesi síðuna séuð með facebook... ;)
Annars er allt það besta að frétta frá okkur hérna í Germany.
Bjöggi spilaði fyrsta leikinn eftir pásuna hérna á laugardaginn og unnu þeir með tveimur mörkum... Mjög skemmtilegur leikur og kallinn stóð sig að sjálfsögðu frábærlega.
Guðjón Valur, Þóra og stelpurnar komu í heimsókn til okkar og komu svo með á leikinn... Eftir leikinn fórum við svo út að borða í Stuttgart.

Eitt sem að við áttum eftir að segja ykkur er að Bjöggi fékk hringingu frá Jóa Fel í síðustu viku þar sem að hann tilkynnti honum að hann hafi sem sagt verið hæstur yfir alla iðnnema á Íslandi s.s hæsti iðnneminn 2008!! Núna á laugardaginn voru svo verðlaunin afhennt í ráðhúsinu og afhennti Forsetinn þau. Í verðlaun voru fullt af viðurkenningum, Silfurpeningur, frítt nám í Hí og fleira.
Við viljum líka biðjast afsökunar hvað við höfum verið lélegir bloggarar en það hefur bara verið svo mikið að gera hjá okkur... Ég er að læra á fullu í félagsráðgjöfinni og Bjöggi að lesa einkaþjálfarann.
En við gerum okkar besta við að bæta okkur ;)
Bró og Andrea fengu svo að vita kynið á bumbubúanum í síðustu viku og eiga þau von á lítilli prinsessu í júní :)
Fleira var það ekki í bili.....
Karen og Bjöggi
24. janúar 2009 klukkan 02:08
Nú er bara einn dagur í brottför heim hjá okkur...
Tíminn á Íslandi er búinn að vera alveg yndislegur!!
En núna er kominn tími á að komast í daglegu rútínuma aftur... fara að æfa vel og læra og svona...
Mjög leiðinlegt að þurfa að kveðja alla einu sinni enn... en það fylgir því að búa í útlöndum!
Ég er núna byrjuð í skólanum og lýst bara rosalega vel á allt saman... Er búin að finna glósufórnalömb sem að ætla að hjálpa mér að senda mér glósur og svona úr tímunum :)
Annars verð ég bara að vera súper dugleg að læra þetta allt sjálf!...
Fyrir þá sem að vita það ekki þá er ég að verða besta frænka í heimi bráðum, en brósinn minn og Andrea mín eiga von á barni og hlakka ég mikið til í að fá eitt kríli til þess að dekra við! :)
Annállinn er löngu klár en það er einhvað vesen að setja hann inn... Ég er að vinna í því og mun hann vonandi koma inn sem fyrst!
Annars munum við byrja aftur að blogga á fullu þegar við komum heim aftur... búin að vera í ágætispásu frá því á meðan við vorum hérna heima...Take care
Karen
Karen og Bjöggi
04. janúar 2009 klukkan 03:01
Mér fannst tímabært að henda inn eins og einni færslu, alltof langt síðan síðast!
Jólin eru búin að vera alveg æðisleg, við erum búin að hafa það alveg rosalega gott og borða nóg af góðgæti.
Nú er Bjöggi stunginn af á æfingamót í Svíþjóð sem að byrjar á morgun og svo fara þeir til Danmerkur á annað mót strax á eftir... hann kemur aftur hingað aftur 12.janúar og verðum við hérna alveg til 25.janúar ;)
Bjöggi var einnig valinn Íþróttamaður Fram 2008 og er frábær heiður að vera valinn það. Þetta er í fyrsta skipti í 100 ára sögu Fram sem að íþróttamaður Fram er valinn.
Gaman líka að segja frá því að hann var í 14-16 sæti yfir íþróttamenn ársins... sem er líka mikil snilld :*

(myndasafn JGK)
Ágætt að ég monti sig aðeins af kallinum enda er ég endalaust stolt af honum og á hann þetta allt fyllilega skilið :)
En ég er að byrja í félagsráðgjöfinni núna 15.janúar þannig að ég næ nokkrum dögum í skólanum áður en ég fer út. Og er ég bara farin að hlakka til að byrja, finnst fögin sem að ég er að fara í mjög spennandi.
Ég er að taka til smá annál sem að inniheldur hápunkta ársins 2008 sem að ég mun setja inn við tækifæri...
Annars vildum við óska ykkur gleðilegs nýs árs og farið vel með ykkur á nýju ári!! :)
Kv.Karen
Karen og Bjöggi
19. desember 2008 klukkan 18:03
Verð að henda þessum link inn sem að ég gróf upp á youtube nú um daginn... Þetta kemur vonandi til með að létta á einhverjum í jólastressinu öllu en þetta er íslenskur maður að stela nammi... Þvílíkur snillingur þarna á ferð... Þetta er reyndar ekki nýtt myndband en alveg magnað samt...
Íslenskur gaur að stela nammi...
Takk fyrir mig í bili og hlakka til að sjá ykkur um jólin... ;)
Kv. Bjöggi
P.s Ætlum að reyna að henda inn einni færslu fyrir jól.
Bjöggi
14. desember 2008 klukkan 14:27
Sæl öllsömul... Ég vil byrja á því að þakka fyrir góður móttökur við HK færslunni og vil ég einnig þakka fyrir stuðninginn og góð orð í minn garð frá þeim sem commentuðu. Ástæðan fyrir þessari færslu var samt ekki að fá samúð heldur var þetta eitthvað sem að ég varð að koma frá mér... Hrikalega gaman að sjá hversu margir lesa síðunna og frábært þegar fólk lætur vita af sér með því henda inn orðum í comment... Á fullt af góðum og skemmtilegum sögum úr HK líka en þær bíða betri tíma... Næst er komið að þessu...
Hef verið að hugsa ansi mikið uppá síðkastið hvernig ég get orðið betri persóna og betri íþróttamaður... Já ætla að vera smá væmin og ef að þið nennið ekki að lesa það þá er um að gera að bara ýta á X-ið uppi í hægra horninu eða tékka á youtube eða eitthvað annað.. ;)
Tvö mál hafa verið mér ofarlega í huga og þarf ég að koma því út... Tel frekar að ef að ég búinn að koma þessu frá mér þá standi ég frekar undir því...
1. Rækta gömul vinatengsl...
Á fullt af góðum vinum en hef einnig "misst" fullt af góðum vinum og félögum vegna þess að ég hef ekki ræktað samband mitt við þá og leyft því bara að fjara í burtu. Ástæða : Flutningur milli bæja og landa, tímaskortur eða feimni??? Ekkert af þessu er nægilega góð ástæða fyrir því að "missa" vini... Hef uppá síðkastið alltof oft lent í því að segja "Við verðum að fara að hittast bráðum aftur, er orðið svo langt síðan" og ekki staðið við það... Er orðinn þreyttur á því og ætla að gera eitthvað í því... Er búinn að ákveða að hitta marga aðila núna um jólin og í janúar og rækta gömul vinasambönd o.fl. Ætla mér að hitta auðvitað fjölskylduna, alla mína helstu vini o.fl... og svo eru það þeir sem að ég hef ekki hitt lengi...
Þeir sem að mér dettur svona snögglega í hug eru t.d Steinþór, Sunna og nýja krílið þeirra... Óli, Hanna og Elmar... Ómar, Bjarni og Heimir... Gulli... o.fl. o.fl.
2. Láta gott af mér leiða og vera góð fyrirmynd...
Hef aðeins verið að velta fyrir mér kostum þess að vera atvinnumaður í handbolta. Hef það að atvinnu að gera eitthvað sem mér finnst skemmtilegt... En stundum er þetta ekki alltaf skemmtilegt og þess vegna lendir maður oft í því að spyrja sig... Er þetta þess virði??? Svarið er já... Ég labbaði inn á heimili um daginn hérna í Bittenfeld þar sem ég var vegna myndatöku sem að ég fór í og þegar ég steig inn um hurðina þá var beint á móti mér barnaherbergi með stórri mynd á hurðinni... Það var mynda af mér... Þetta eitt snerti mig aðeins og fékk mig til að hugsa... Ég get haft meiri áhrif á yngri kynslóðina en ég geri mér grein fyrir...
Ég er þannig gerður að ég reyni að láta gott af mér leiða hvar sem ég er... Hvort sem að það er að gefa gamla búninga eða íþróttaflíkur til krakka, hárbönd og svitabönd eftir leiki, styrkja Unicef, taka þátt í átaki gegn einelti, átaki gegn óhollu mataræði eða bara spjalla við þá sem að líta upp til manns, vegna þess að eitt sinn var ég þessi litli pjakkur sem að horfði á handboltamennina með glampa í augunum...
Ætla að nýta mér atvinnumennskuna til þess að hafa áhrif, hjálpa, veita innblástur og ánægju og hjálpa þeim sem að ég get mögulega hjálpað.
Þetta hjálpar mér líka að verða betri íþróttamaður vegna þess að maður er fyrirmynd hvort sem að manni líkar það betur eða verr... Það eru fullt af hlutum sem að ég þarf að laga í mínu fari sem handboltamaður og það að vita að það séu krakkar að fylgjast með mér sem líta upp til mín hjálpar mér að laga þá hluti og verða betri fyrir vikið..
En nú er einungis vika í að við skötuhjúin förum til landsins og er maður farinn að telja niður klukkutímana...
En fram að því eru á planinu hjá okkur jólagjafainnkaup og margt fleira... Ætlum einnig að bjóða Sven vini okkar í íslenskt lambalæri í kvöld og hafa það rólegt...
En þangað til næst bið ég að heilsa...
Bjöggi
Bjöggi
13. desember 2008 klukkan 15:27
...að Sigurbjörg eyði öllum sínum vökustundum upp í skóla að læra í kjól og háum hælum með rauðan varalit til þess að ganga í augun á einhverjum "heitum" sjúraþjálfaranema.
...að Sara og Rúnar séu eru farin að plana framtíðina og má búast við því að þau verði komin með 5 börn, hús, bíl og nokkra hunda innan nokkurra ára
...að Anna Lind ætli að hafa nýbakað bananabrauð bíðandi eftir okkur á flugvellinum þegar að við lendum á Íslandi.
...að Logi hafi verið handtekinn fyrir of hraðan akstur
...að Ragnhildur sé komin í opið samband, hún hefur ekki en gefið upp nafnið á kauða... En sterkur grunur liggur á að það sé einn af samstarfsmönnum hennar í VÍS
...að Sissi Jóns hafi sent stefnumótaauglýsingu í Fréttablaðið, við góðar undirtektir að hans sögn
...að síminn hjá Marthe hafi ekki stoppað síðan að ákveðin mynd af henni leit dagsins ljós á www.blogcentral.is/framstelpur hún hafi þó ignorað símtölin
...að Logi og Lundarnir verði aðal hljómsveitin næsta sumar
...að KKK og unnusta hans eigi von á öðru barni en í þetta skiptið er það Kári sem að ber barnið undir belti....aðspurður hafði kári þetta um málið að segja "já hún var svo orkulaus þessi elska eftir seinustu níu, þannig að ég og mitt breiða bak ákváðum að tækla þetta, ég er hvort eð er alltaf með bumbu, ætti ekki að vera erfitt"
Haldið áfram að vera dugleg að senda okkur slúður... nú þegar prófatörnin er búin þá hlítur að koma einhvað krassandi uppá yfirborðið
Karen
12. desember 2008 klukkan 20:49
Eins dags seinkun verður á föstudagsslúðrinu að þessu sinni vegna miklilla anna hérna í Þýskalandi.
Þannig fylgist með......
Karen og Bjöggi