Um okkur

  • Nafn: Karen og Bjöggi
  • Staður: Schaffhausen, Sviss

Auglýsing

Myndirnar okkar

Klukkan

Svínaflensusprauta

18. október 2009 klukkan 22:12
Ég er í óbeinni bloggkeppni við Einar Inga og ætla því ekki að leyfa honum að vinna mig... þess vegna verð ég nú að koma með eina færslu. Þá er staðan 4-4 í þessum mánuði!! :)

En við Bjöggi fengum svínaflensusprautu áðan eftir leikinn hjá Bjögga, við fundum ekki fyrir sprautunni... Smá marblettur að myndast núna en annars erum við nokkuð góð. Síðasta minning mín af sprautu var í Hvassó og þá fannst mér það svo vont að öxlin varð hörð og öll rauð og þrútin, mér fannst líka þá eins og læknirinn hafi farið alveg inn að beini. En þetta var sko bara peace of cake! Stóðum fyrir utan klefann og læknirinn dúndraði sprautunni í okkur :)

En að leiknum, Kadetten unnu enn einn leikinn og eru því enþá taplausir, nú eiga þeir aðeins eftir 2 lið í þessari umferð og eru þau neðarlega á töflunni. Þannig að það lítur allt út fyrir að þeir verði taplausir að fyrstu umferðinni lokinni. Bjöggi stóð sig vel að venju og varði yfir 20 bolta.

Við Bjöggi ákváðum að horfa á Shawshank Redemption um helgina sem að er sögð vera ein besta mynd allra tíma. Bjöggi var lengi að fá mig til að horfa á hana því að þessi mynd er síðan 1994. Skandall að við höfum ekki séð hana fyrr því að hún er algjör snilld.

Ef að einhver hefur svar við einbeitingaskorti þá endilega látið mig vita hvaða ráð eru við honum. Ég hugsa að ég nái aldrei að læra meira en svona korter í einu og þá þarf ég aðððeins að..... hehe, Öll ráð eru vel þegin!!

Gangið hægt inní nýja viku :)
Kveðja frá Schaffhausen
Karen

Karen og Bjöggi
Fá hin markmannsgreyin ekki einu sinni að snerta parketið?
Vel gert Bjöggi!
19. október 2009 klukkan 06:29
Rúnar
 
Shawshank er einhver besta mynd allra tíma, alveg fruntalega góð.
20. október 2009 klukkan 10:51
Marthe Sördal
 
Knús á þig... gott að sprautan var ekki vond við ykkur :)
21. október 2009 klukkan 16:07
Rúnar
 
Einar var að blogga.

HVENÆR ÆTLAR ÞÚ AÐ BLOGGA MEIRA!!!!????

djók,

en samt ekki

en samt,

en samt svona ekki

Meiri virkni PLZ
28. október 2009 klukkan 19:29

Skrifa athugasemd