Um okkur

  • Nafn: Karen og Bjöggi
  • Staður: Schaffhausen, Sviss

Auglýsing

Myndirnar okkar

Klukkan

Styttist í jólin!

25. nóvember 2009 klukkan 21:59
Bjöggi og co. komust áfram í Evrópukeppninni, gerðu jafntefli í fyrri leiknum í troðfullri höll í Króatíu og unnu svo seinni leikinn, heimaleikinn með 4 mörkum. Þeir drógust svo á móti liði í Rússlandi í næstu umferð. Hefði samt verið skemmtilegra að lenda á móti t.d Haukunum og fara með liðinu til Íslands. En Rússland var það og næsta umferð er spiluð um miðjan febrúar.

Þeir eru þá enþá taplausir í ár, þá erum við að tala um Season Opening á móti Göppingen, 3 leikir í Champions League (Lemgo, Ademar Leon og Celje Lasko), 11 leikir í deild (heil umferð) og tveir í EHF cup. Og rétt í þessu einn bikarleikur. Glæsilegur árangur hingað til.

Þeir eru svo að spila næsta deildar leik á laugardaginn og síðan spila þeir helgina eftir það við Kára og félaga í Zürich... sigur þar fleytir þeim nokkuð langt, en þeir eiga nú 4 stig á Zürich.

Prófin eru að byrja hjá mér, ég byrja á miðvikudaginn næsta í prófum. Ég er í þetta skiptið ekki alveg tilbúin að fara til Íslands. Væri mikið til í að njóta bara jólaundirbúningsins hérna og ná síðustu leikjunum. En það þarf víst að rumpa þessum prófum af. Bjöggi kemur svo til Íslands 19.desember ;););) Það er frábært að hérna er ekki spilað um jólin, heldur er gefið almennilegt jólafrí !!

En ég get ekki beðið eftir 17.des þegar að ég klára prófin. Þá verður prófljótan tekin í gegn og skellt sér beint í strípur og neglur. Þá tekur einnig við endalaus gleði en við vinkonurnar erum að fara að gúffa í okkur á jólahlaðborði í Perlunni ásmt því að jólahóf Fram er þá helgi. Þá getur maður líka fyrst farið að njóta jólaundirbúningsins að einhverju viti.

Það sem að hefur dregið á daga okkar uppá síðkastið eru jólagjafakaup, erum búin með næstum allar jólagjafirnar... tókum þessa helgi í það og vorum nokkuð rösk :) Eigum þó nokkrar eftir en þær verða bara keyptar á Íslandi.

Við fórum einnig að hofa á Kára og co í Zürich taka á móti Aroni og félugum í Kiel um helgina. Kíktum svo með þeim út að borða eftir leikinn. Á sunnudaginn var svo Evrópuleikurinn hjá Bjögga, við buðum Kára, Kiddý og Klöru í heimsókn í kökur fyrir leikinn. Það er orðin hefð að ég baki alltaf bananabrauð fyrir leiki hjá Bjögga og ég ákvað bara að skella í tvær sortir í viðbót, finnst ekki taka því að gera bara eina sort ef að ég er byrjuð að baka. En ég bakaði ljómandi góða bountyköku og virkilega góða þó ég segi sjálf frá gulrótaköku, bakarinn sjálfur tók sig reyndar til og mixaði kremið.

Í janúar er stefnan sett á EM... erum nokkrar konur leikmanna sem að ætlum að skella okkur á milliriðlana. Þá er líka eins gott að þeir komist í þá sem að er reyndar engin spurning :) Verður gaman að fara á stórmót, en það er haldið í Austuríki. Þannig að við Bjöggi verðum ekki komin til Sviss aftur fyrr en 1.febrúar.

Annars hef ég ákveðið að taka smá bloggpásu á meðan á prófunum stendur og yfir jólin... Ætli ég sjái ekki bara til hvort að við höldum áfram að blogga eftir áramót. Það kemur í ljós.

Annars vona ég að þið hafið það rosalega gott um jólin.
Hlökkum til að sjá ykkur og njóta jólanna með ykkur.

 

Karen og Bjöggi
3 athugasemdir

Saudi-Arabíu spilarar í Jórdaníu

11. nóvember 2009 klukkan 19:59
Takk fyrir öll kommentin í síðustu færslu.... svoooo gaman að blogga við svona góða undirtektir...

En eins og flestir vita ákvað hann Jóhann bróðir minn og Danni Berg að taka tilboði sem að þeim bauðst að spila fyrir Saudi Arabískt lið á meistaramóti miðausturlandanna sem haldið er í Jórdaníu í 3 vikur.. þeir ákváðu að skella sér á það tilboð og er það heljarinnar ævintýri fyrir þá að prufa að spila þarna...

Þeir eru komnir með blogg sem að ég mæli eindregið með að þið skoðið enda mjög spennandi og skemmtilegar færslur sem að þeir munu koma með!!

Slóðin er:

http://www.joiogdanni.blogspot.com/


Karen og Bjöggi
3 athugasemdir

Ísland best í heimi

03. nóvember 2009 klukkan 23:00
Það er alltaf jafn yndislegt að koma til Íslands, við Bjöggi erum nýkomin heim eftir frábæra viku á Íslandi. Bjöggi var að æfa með landsliðinu og ég ákvað að koma heim surprice... það var rosalega skemmtilegt. Ég var búin að ákveða að ég yrði einhverntímann að koma svona surprice, þurfti aðeins að plata fólk og sagði að ég ætlaði að vera bara í Sviss hjá Kiddý og Kára og einbeita mér að lærdóm og svona...
Pabbi sótti Bjögga á flugvöllinn og ég hélt að andlitið væri að detta af honum þegar að hann sá mig labba út með honum. Mamma beið spennt heima eftir Bjögga og brá rosalega mikið þegar að hún sá mig, greip um andlitið í sjokki eins og Jóhann bró var búinn að spá! Var líka rosalega gaman að koma stelpunum mínum á óvart og viðbrögðin voru mjög fjölbreytt.

Þessi vika var alltof fljót að líða, maður áttar sig á því þegar að maður býr svona í útlöndum hvað það er æðislegt að geta komið heim til Íslands því þá nýtur maður þess miklu meira á meðan maður er þar.
Andrea og Aníta Lilja voru á Íslandi á sama tíma, rosa gott að geta knúsað litlu sætu snúlluna aðeins.

Við tókum líka heldur betur á því þessa helgi, landsliðið var í heljarinnar prógrammi á föstudeginum þar sem að það var keppni í ýmsum greinum, skipt í 4 lið. Bjöggi verður að blogga ef þið viljið heyra meira um þeirra dag.
Á föstudagskvöldið fóru svo konur landsliðsmanna saman út að borða, fórum á Fiskimarkaðinn, rosalega góður matur þar... fengum okkur svona tasting menu, fengum 3 forrétti, 1 millirétt, 3 aðalrétti og svo eftirrétt... Svo voru stigin góð spor eftir matinn. Á laugardaginn fór Bjöggi svo með frömmurunum á Austur þar sem að matur og drykkir voru í boði og ég hélt smá teiti í Heiðó. Það tekur sko á að taka svona tvöfalt :)

Næst á dagskrá er það svo endalaus lærdómur hjá mér... þarf að skrifa 2 stórar ritgerðir á einni viku... þannig að það er eintómt fjör þessa viku.
Bjöggi á næst leik svo á sunnudaginn og þá heldur sigurgangan vonandi áfram, hef enga trú á öðru.

Held það séu ekki fleiri fréttir í bili, er búin að setja nokkar myndir frá vikunni á Íslandi inn á facebook... endilega kíkið á þær,
Hlökkum mikið til þess að sjá ykkur öll aftur í desember

Karen og Bjöggi
Engin athugasemd

Svínaflensusprauta

18. október 2009 klukkan 22:12
Ég er í óbeinni bloggkeppni við Einar Inga og ætla því ekki að leyfa honum að vinna mig... þess vegna verð ég nú að koma með eina færslu. Þá er staðan 4-4 í þessum mánuði!! :)

En við Bjöggi fengum svínaflensusprautu áðan eftir leikinn hjá Bjögga, við fundum ekki fyrir sprautunni... Smá marblettur að myndast núna en annars erum við nokkuð góð. Síðasta minning mín af sprautu var í Hvassó og þá fannst mér það svo vont að öxlin varð hörð og öll rauð og þrútin, mér fannst líka þá eins og læknirinn hafi farið alveg inn að beini. En þetta var sko bara peace of cake! Stóðum fyrir utan klefann og læknirinn dúndraði sprautunni í okkur :)

En að leiknum, Kadetten unnu enn einn leikinn og eru því enþá taplausir, nú eiga þeir aðeins eftir 2 lið í þessari umferð og eru þau neðarlega á töflunni. Þannig að það lítur allt út fyrir að þeir verði taplausir að fyrstu umferðinni lokinni. Bjöggi stóð sig vel að venju og varði yfir 20 bolta.

Við Bjöggi ákváðum að horfa á Shawshank Redemption um helgina sem að er sögð vera ein besta mynd allra tíma. Bjöggi var lengi að fá mig til að horfa á hana því að þessi mynd er síðan 1994. Skandall að við höfum ekki séð hana fyrr því að hún er algjör snilld.

Ef að einhver hefur svar við einbeitingaskorti þá endilega látið mig vita hvaða ráð eru við honum. Ég hugsa að ég nái aldrei að læra meira en svona korter í einu og þá þarf ég aðððeins að..... hehe, Öll ráð eru vel þegin!!

Gangið hægt inní nýja viku :)
Kveðja frá Schaffhausen
Karen

Karen og Bjöggi
4 athugasemdir

Góð vika að baki

14. október 2009 klukkan 15:06
Emilíana Torrini var rosalega flott!!! :) Lay Low hitaði upp fyrir hana og stóð sig mjög vel, svo er Emilíana bara svo æðisleg að það er ekki hægt annað en að dýrka hana.
Við fórum á tónleikana með Sigrúnu Sif frænku minni og Helga kærasta hennar sem að eru nýflutt hingað til Sviss. Eftir tónleikana fórum við svo á djammið með Emilíönu, Lovísu (Laylow) og þeirra crew-i. Það var snilldar kvöld! Við Bjöggi tókum svo lest klukkan sex um nóttina til Kiddý hans Kára sem að var svo góð að taka á móti okkur um miðja nótt eða meira svona snemma morguns :*

Það er farið að kólna hérna hjá okkur, gerðist voðalega hratt einhvað. Í síðustu viku voru í kringum 20 gráður en svo núna eru þær komnar niðrí 8. En sem betur fer er sólin dugleg að skína með þannig að það er ekki eins kalt. Það er varla hægt að biðja um sumar endalaust, það er nú komin miður október þannig að það var kominn tími á að það myndi kólna aðeins.

Á föstudaginn síðasta fórum við til Stuttgart á leik hjá Bittenfeld. Mjög gaman að hitta alla aftur :) Í Stuttgart var einnig Volksfest en það er næst stærsta hátíðin á eftir Oktoberfest. Þar var mikið um ölvaða þjóðverja, við Bjöggi fórum þó aðallega þangað til að fá okkur Creps... Það er náttúrulega of gott með bönunum og nutella súkkulaði!! :)

Næsti leikur er á sunnudaginn hjá Bjögga þannig að ég býst við rólegri helgi hérna hjá okkur. Kanski aðeins að gefa í í lærdóm og svona. Ekki veitir af því...

Þar sem að ég er að taka þetta svona utanskóla þá veit ég ekki mikið hvað er að gerast í tímum og svona. Lenti í því núna að í verkefnalýsingu stóð að það ætti að skila ritgerð á mánudaginn síðasta 12.okt. Ég var á fullu að gera hana og klára svo ég næði að skila á réttum tíma. En svo á sunnudagskvöldinu komst ég að því að það var villa og það átti að vera nóvember. En ég var að sjálfsögðu bara fegin að hafa bara rumpað þessu af og því einu minna að gera í nóvember þegar á að skila öllum ritgerðunum.

Jæja best að skottast út að hlaupa, rassinn minnkar ekki að sjálfum sér :)
Hafið það gott og farið vel með ykkur!

Karen
Karen og Bjöggi
5 athugasemdir

Átak og Emilíana Torrini

08. október 2009 klukkan 15:45
Ég fékk svona líka skemmtilegt skot frá honum Einari Inga á nýju bloggsíðunni hans þar sem að hann kvartaði undan fátíðu bloggi hérna á síðunni hjá okkur. Ég þorði því ekki öðru en að dúndra inn færslu strax. Ég hvet ykkur annars til að kíkja á bloggið hans. Verður án efa mjög góður penni. Slóðin er: http://www.einarhrafnsson.blogspot.com/

Núna standa yfir átaksdagar hérna hjá okkur í Gemshalde 30 sem að standa til 25.okt eða þangað til Bjöggi fer í landsliðspásu til Íslands. Sem að fela í sér OF hollt mataræði, miklar æfingar sem og ýmsar æfingar hérna heima fyrir svefninn. Þar sem að við erum komin með lítið gym hérna heima hjá okkur. Sem betur fer er ekki hægt að svindlast í ólollustu þar sem að Bjöggi passar mjög vel uppá átakið :)

Við erum með gymstick, sem að er rosalega sniðugt og hægt að gera alls konar æfingar... læt myndir fylgja með


Keyptum svo um daginn upphífingarstöng sem að við tillum bara á veggin, magaæfingadýnu og pilates rúllu.



Nú vantar bara sérherbergi fyrir þetta allt, hver veit nema í næstu íbúð verði lítið gymherbergi.

Bjöggi er í leikjapásu og eru því æfingar 2svar á dag og mikil keyrsla hjá honum þessa dagana.

Svo er Bjöggi er í fríi þessa helgi þannig að við ætlum að fara annað kvöld á leik hjá Bittenfeld en þeir eru að spila í Porsche arena í Stuttgart. Verður gaman að hitta alla þar aftur. Síðan á laugardaginn er stefnan sett á Adidas outlet hérna í Sviss, plús það að vera outlet þá fá leikmenn 30% afslátt af öllu. Um kvöldið er það svo Emilíana Torrini, hún er að spila í Zürich og Laylo er að hita upp fyrir hana.

Annars vil ég gjarnan sjá ykkur skora á Bjögga að koma með næstu færslu... er ekki kominn tími til!?!?!?!?

Erum búin að setja nokkrar myndir inná facebook...


Karen


Karen og Bjöggi
3 athugasemdir

Frábær Kasselferð að baki

01. október 2009 klukkan 21:45
Helgin í Kassel var yndisleg...
Komum til kassel kl.04.00 á föstudagskvöld, Jóhann bró vakti eftir okkur og sátum við og spjölluðum til að verða sex. Daginn eftir var ég svo rosalega spennt að hitta fallegustu frænku mína sem að stækkar og stækkar og brosir útí eitt. Var vöknuð fyrir 10 og beið spennt eftir að gullið vaknaði... hálftíma seinna var hún mætt inní herbergi til mín brosandi útað eyrum. Verð að segja að það fátt betra en að vakna við svona móttökur.
Í Kassel voru samankomnir 14 íslendingar eða reyndar 16 á laugardagkvöldinu. Ég, Bjöggi, Jóhann bró, Andrea, Aníta Lilja, Einar Ingi og Þórey, Danni berg, Gauji, Dröfn og Krista litla, foreldrar gauja, Alli, og svo kíktu Logi Geirs og Ingibjörg á laugardagskvöldið. Við grilluðum öll saman hjá Gauja og héldum svo heljarinnar gott partý þar. Partýið einkenndist af mjög miklum söng. Enda voru 3 gítarleikarar sem að skiptust á að halda uppi stuðinu. Þ.e Gauji, Þórey og Logi. Nokkur góð video voru tekin um kvöldið og fær almenningur kanski einhverntíman að njóta þeirra. Við enduðum svo á því að kíkja á lífið í Kassel.
Annars nutum við þess að vera með Jóhanni, Andreu og Anítu Lilju í Kassel og höfuðm að rosalega gott.
Við fórum svo heim á mánudagskvöldið. Við ákváðum að vera samferða Manuel sem að er með Bjögga í Kadetten og kærustu hans en þau fóru til Minden. Ferðin til Kassel tók ekki nema í kringum 4 og hálfan tíma þannig að við Bjöggi eigum án efa eftir að bruna þangað aftur þegar að það kemur aftur fríhelgi hjá þeim.

En að öðru, við erum búin að ákveða að skella okkur á tónleika með Emiliönu Torrini hérna í Zürich 10.október. LayLo er að hita upp fyrir hana. Frænka mín var að flytja til Zürich og ætlum við að kíkja með þeim á tónleikana. Verður gaman að sjá Emilíönu. En hún er mjög vinsæl hérna í Sviss og í Þýskalandi líka. Jungle Drum er spilað óspart hérna á öllum helstu útvarpsstöðunum.

Annars er allt í blóma, Bjöggi og co unnu síðasta leik. Bjöggi stóð sig mjög vel og var maður leiksins. Þið getið séð leikinn inná http://www.internet.ch og valið þar handbolti (Kadetten-Pfadi Winteruhr)

Læt nokkrar myndir frá Kassel fylgja með











Karen
Karen og Bjöggi
1 athugasemd

Takk :)

22. september 2009 klukkan 22:10
Takk fyrir öll kommentin ;)
Gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með okkur!! :*
Þið sem að kommentuðuð ekki, ég á bara inni hjá ykkur ...

Lítið nýtt að frétta héðan, nema að sigurganga Kadetten heldur áfram... þeir eru taplausir í deildinni :) Á föstuaginn er svo leikur á móti Pfadi Winterthur og það er svona síðasti erfiði leikurinn í bili... Þeir klára það bara og fara svo inní fríhelgina taplausir... þá verður sko fagnað :)

Erum að fara til Kassel á föstudaginn... verður alvöru Íslendingapartý þar, ef einhverjir eiga leið þar hjá þá er um að gera að koma við!! :)

Annars gengur lífið í Schaffhausen sinn vanagang, handbolti, lærdómur, heimsóknir, verslunarferðir, matarboð og fleira. Veðrið er enþá gott, í kringum 22 stig á daginn... það er ansi ljúft :)

Erum ekki alveg nógu dugleg að taka myndir, en reyni að bæta úr því á næstunni og lofa allavega fullt af myndum frá Kassel.

Eigiði góða viku og enþá betri helgi... Ég blogga svo næst eftir Kasselferðina og kem með ferðasöguna :)

Myndir af íbúðinni eru komnar inná facebook ;) Fyrir ykkur sem að hafið beðið spennt!

Karen


Karen og Bjöggi
1 athugasemd

Fríhelgi

16. september 2009 klukkan 20:17
Ég hef ákveðið að gera smá skoðanakönnun hérna á síðunni. Okkur langar til þess að vita hverjir það eru sem að eru að skoða síðuna okkar, skiljið endilega eftir komment. Því að ef það er orðið einhvað lítið um heimsóknir þá er spurning um að hætta þessu bara?????


Ég bíð spennt eftir námsbókunum mínum, en þær eru á leiðinni í pósti. Þá get ég loksins farið að læra af viti og hætt að fá samviskubit yfir því hvað allir aðrir virðast vera duglegir. Allavega miðað við á facebook þá virðast allir vera sokknir ofan í bækurnar og eyða öllum sínum tíma á hlöðunni, háskólatorgi, odda og ég veit ekki hvað og hvað.

Ég er byrjuð í ræktinni á fullu núna aftur. Tók mér smá pásu í ágúst þegar að ég var veik. Núna verður tekið almennilega á því, spinning, lyftingar, bresnnsla svo einhvað sé nefnt.
Eitt lýsandi dæmi yfir það hvað Svisslendingar eru almennilegir. Ég var í mínum fyrsta spinningtíma og stelpan við hliðina á mér tók eftir því að ég var ekki með vatn í tímanum. Þannig að hún tók sig til og rétti mér sinn brúsa og bauð mér sopa. Ég hafði það reyndar ekki í mér að taka við honum, finnst hálf skrýtið að drekka útúr bláókunnugri manneskju.

Ég fór í strípur hérna í morgun. Ég var frekar stressuð fyrir það því að ég get verið mjöööög dómhörð á hárið á mér. Finnst mjög erfitt að þurfa að skipta um stofur sérstaklega þar sem að hárgreiðslukonan mín á Íslandi er svo góð. En þetta var bara neyðartilfelli, það var þó ekki alslæmt á endanum. Ég hugsa að ég gefi þessu svona 7,5-8. Annars hlakka ég mikið til að gera farið aftur til hennar Svövu minnar í Wink um jólin.

Við Bjöggi vorum að ákveða að fara til Kassel aðra helgi, 25-27 sept. Bjöggi er í fríi laugardag og sunnudag. Þannig að við vorum að spá í að fara beint eftir leikinn hjá Bjögga á föstudagskvöldið og koma til baka fyrir morgunæfinguna hjá honum á mánudeginum. Þetta er c.a 5 tíma keyrsla, en það er sko alveg þess virði á að fá að eyða tveimur dögum með Jóhanni, Anítu Lilju (eða kleine Anita eins og þjóverjarnir kalla hana) og Andreu. Svo er auðvitað alltaf gaman að hitta alla hina Íslendingana í Kassel. Einar Ingi og kanski Þórey ætla einmitt að fara þangað þessa sömu helgi. Þannig að það verður heldur betur stuð í Kassel í lok mánaðarins. Og hlökkum við mikið til að fara og hitta þau öll.

Bjöggi fór á Zürich - Real Madrid með strákunum úr liðinu í gær. Leikurinn fór 2-5 þannig að þetta var heldur betur góður leikur til að fara á. Ronaldo stóð fyrir sínu og þvílík stemmning á leiknum.

Fleira var það nú ekki í bili
Bara minna á að láta vita af sér... það er vel þegið
Kv.Karen

Karen og Bjöggi
18 athugasemdir

Fríhelgi

16. september 2009 klukkan 19:40
Ég hef ákveðið að gera smá skoðanakönnun hérna á sí%2
Karen og Bjöggi
Engin athugasemd